Hæ hæ allir saman :-)
Bara að láta vita að það eru komnar inn 321 nýjar myndir inná barnaland. Héðan frá Mosó er allt gott að frétta. Hún Katrín Agnes stóra prinsessan okkar er á leiðinni alein út til Norge næskomandi mánudag. Hún verður hjá Johanne og fjölsk. Þessa dagana er hún á sundnámskeiði og skemmtir sér konunglega með nýja vini sínum honum Alexander.
Kamilla Aldís er rosalega glöð alltaf hjá dagmömmunni sinni henni Öldu. Hún er rosalega fín og góð og við litlu prinsessuna okkar sem að stækkar nú reyndar frekar hratt. Hildur María hefur það voðalega gott á Akureyri. Það styttist óðum núna í að hún fari að eingnast lítið systkini en Valey er sett 3 ágúst. Vonandi kemur hún svo til okkar aftur seinna í ágúst áður en að skólinn byrjar.
Elli vinnur og vinnur á nýja golfvellinum sínum og gengur rosalega vel. Þessi elska er svo duglegur.
Síðan er ég að fara í 5 vikna sumarfrí frá leikskólanum mínum með Kamillu og Kötu. Við ætlum að vera eina viku á Akureyri í ágúst. Okkur hlakkar mikið til, vonandi verður bara sólin á lofti á hverjum degi svo við getum farið í sund og fengið okkur ís á eftir :-)
Jæja ég læt þetta gott heita í bili hafið það sem allra best og svo hittumst við hress og kát á Dalvík á FISKIDAGINN MIKLA.
Bestu kveðjur úr rigningunni í Mosó..
Kamilla Aldís.
... MyndaLappi © 2008 sett inn um kl. 23:58
Logi fékk loksins að vera með og afmælisbarnið horfir á Bjössa afa með drengina sína.
... MyndaLappi © 2008 sett inn um kl. 22:47
Afmælisbarn dagsins, Linda Ólafsdóttir!

Til hamingju með daginn elsku ástin mín, bæði með afmælisdaginn sem og brúðkaupsafmælið, trúlofunarafmælið og skírnarafmæli litla Steins.. Nú förum við aftur í skóginn í dag í bongóblíðuna þar og höldum litla afmælisveislu. -Aðalveislan bíður næstu helgar. En aftur til hamingju og njóttu afmælisvikunnar til hins ýtrasta.
kv. Guðni
... MyndaLappi © 2008 sett inn um kl. 10:55
Heimasíða vikunnar, Gsmbensín.is
Efnisflokkar: Heimasíða vikunnar
Smellið hér til að sjá fyrri heimasíður vikunnar.
... MyndaLappi © 2008 sett inn um kl. 10:41
Hrósið fær sólin
Efnisflokkar: Hrós vikunnarHrósið að þessu sinni fær sólin af augljósum ástæðum.. Einnig fær þoka og hafgola plús fyrir að vera ekki til í Vaglaskógi þó nóg sé af þeim ömurlegheitum í Eyjafirði. Meiri sól, meiri sól!! 
Smellið hér til að sjá eldri "Hrós vikunnar"
... MyndaLappi © 2008 sett inn um kl. 10:34
Konni úti í garði
Jæja nú er tölvan okkar loksins komin úr viðgerð, þannig að ég ákvað í tilefni af því að senda nýja mynd af húsinu og lóðinni okkar. Grasið grænkar og runnarnir stækka, en eitthvað gengur hægt að klára pallinn, það er nefnilega búið að vera endalaus rigning hér undanfarið en vonandi er nú að rætast úr því, svo við getum farið að klára. Sendi aðra mynd þegar það er búið. Bestu kveðjur úr 22c°frá Dalvík.
... MyndaLappi © 2008 sett inn um kl. 16:05
Diseño e iconos por N.Design Studio | A Blogger por Blog and Web | Modificado por Recursos En Mi Blog




